Við flytjum inn bíla frá Evrópu á enn betra verði!

Evrópubílar á enn betra verði!

Viltu flytja inn bíl með okkur?

Fylltu út beiðni um bílaleit með því smella á hnappinn hér að neðan.

Um okkur

Evropubillinn.is sérhæfir sig í að flytja inn bíla af öllum tegundum frá Evrópu til að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar. Við leggjum okkur fram að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja hnökralaust innflutningsferli. Markmið okkar er að bjóða upp á samkeppnishæf verð og persónulega þjónustu við viðskiptavini.

Ef þú hefur áhuga á að flytja inn bíl, hafðu þá samband við Bjarka Birgisson með því senda tölvupóst á sala@evropubill.is

Þjónustan

Evrópubíllinn þinn

Við finnum evrópubílinn þinn eftir þínum óskum. Mikilvægt er að gefa upp skýrar upplýsingar um hvernig bíl þú ert að leitast eftir að eignast svo leitin eftir honum verður nákvæmari og skilvirkari.

Staðfesting

Þegar við höfum fundið bíllinn sem uppfyllir þínar óskir, er undirritaður kaupsamningur.

Þegar við höfum gengið frá kaupum á bílnum hjá erlenda sölubirgja, færðu senda staðfestingu um að kaupin hafa farið fram.

Forskoðun eftir kaup

Við framkvæmum forskoðun á notuðum bílum sem við flytjum og fer hún ávallt fram á okkar vegum. Ef bíllinn stenst ekki þínar væntingar t.d. með ástand og búnað, er þér frjálst að hætta við kaupin.

Algengar Spurningar

Við höfum tekið saman algengar spurningar til að hjálpa þér að skilja bílainnflutningsferlið betur.

Hvernig hef ég ferlið við að flytja inn bíl?

Þú getur byrjað með því að fylla út bílaleitaformið á vefsíðunni okkar. Við munum hafa samband við þig til að ræða næstu skref.

Hvað er innfalið í söluverði?

Innifaldur kostnaður við kaup og innflutning bifreiðar

Verðið sem þú sérð innifaldar alla kostnað við kaup og innflutning bifreiðarinnar til Íslands, þar á meðal:

  • Erlent kaupverð á bifreiðinni
  • Forflutningur (flutningur frá framleiðanda til hafnar)
  • Sjóflutningur (flutningur yfir hafið)
  • Hafnargjöld (gjöld tengd komu bifreiðarinnar í hafnina)
  • Flutningstryggingar (tryggingar á meðan á flutningi stendur)
  • Forskáningargjald (gjald fyrir forskráningu bifreiðarinnar)
  • Vörugjald (gjald fyrir vörur sem fluttar eru inn)
  • Virðisaukaskattur (ef bifreiðin ber þau gjöld)
  • Nýskráningargjald (gjald fyrir skráningu bifreiðarinnar á Íslandi)
  • Umferðaröryggisgjald (gjald tengt umferðaröryggi)
  • Kostnaður vegna númeraplata (gjald fyrir númeraplötur)

Þetta tryggir að þú hafir skýra mynd af öllum kostnaði sem fylgir innflutningi og skráningu bifreiðarinnar á Íslandi. Ef þú hefur frekari spurningar, ekki hika við að hafa samband!

Hversu langan tíma tekur innflutningsferlið?

Lengd á innflutningsferlinu miðast við hvar bíllinn er staðsetur, hvort um sé ræða nýjan eða notaðan bíl, og afgreiðslutíma okkar samstarfsaðila erlendis og hér heima.

Áætlaður afhendingartími á notuðum bílum eru 7-8 vikur.

Áætlaður afhendingartími á nýjum bílum getur alveg verið frá 3-6 mánuðum. Fer eftir hvort bíllinn sé til á lager eða sérpantaður hjá erlenda sölubirgja. 

 

Takið þið bíla uppí?

Almennt tökum við ekki bíla upp í. Í þeim örfáum tilvikum sem við tökum bíla upp í  er þegar kaupandi er tilbúinn að afhenta uppítökubíl við undirritun kaupsamnings eða milligjöf dugir til greiðslu á innkaupaverði bílsins. 

Fjármagnið þið bíla heim?

Nei við fjármögnum ekki bíla heim enda eru fjármögnunarlán kostnaðarsöm vegna hárra lántökugjalda og vaxta sem myndi leiða til beinnar hækkunar á söluverði bílsins. 

Fæ ég staðfestingu á kaupum?

Þar sem greiða þarf allt kaupverðið við undirritun kaupsamnings, fá kaupendur staðfestingu frá erlendum sölubirgja að innkaup á bílnum hafi farið fram og því óumdeilt að þeir fjármunir sem kaupendur greiða til okkar, eru ráðstafaðir efiir efni kaupsamningsins. 

BÍLALEITIN

Athugið að mikilvægt er að gefa nákvæmar upplýsingar um hvernig bíl þú vilt að við finnum fyrir þig sem gerir letina einfaldari og skilvirkari. 

Veldu orkugjafa. Hægt er að velja fleiri en einn.

7 + 10 =

@evropubillinn

Tölvupóstur